Akraneskaupstaður 80 ára

Í ár heldur Akraneskaupstaður upp á 80 ára afmælið. Bærinn fékk kaupstaðarréttindi árið 1942 og fyrir sléttum 80 árum síðan var fyrsti bæjarstjórnarfundur á Akranesi haldinn, eða þann 26. janúar árið 1942. Til hamingju með daginn allir Skagamenn nær og fjær!