Aðalfundur foreldrafélags Brekkubæjarskóla

Stjórn Foreldrafélags Brekkubæjarskóla boðar til aðalfundar á TEAMS miðvikudaginn, 2.desember kl. 17:30. Linkur á fundinn verður sendur til foreldra/forráðamanna í tölvupósti og birtur á Facebook-síðu foreldrafélagsins 2.desember.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Breytingar á starfsreglum
- Reikningar félagsins
- Stjórnarkjör
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
- Kosning fulltrúa í skólaráð
- Önnur mál
Fundarboð hefur verið sent til foreldra í tölvupósti í dag ásamt 2 viðhengjum: Núverandi starfsreglum og tillögum að nýjum starfsreglum.