Bókaormar Brekkó

Spurningakeppnin Bókaormar Brekkubæjarskóla er orðin fastur liður í skólastarfi í 4. – 7. bekk í Brekkubæjarskóla. Í ár var þetta í níunda skiptið sem keppnin fór fram. Lestur yfir sumartímann er jafn mikilvægur og lestur að vetri til og er þetta einn liður í því til að hvetja til sumarlestrar. Það er gert þannig að nemendur í 3. – 6. bekk fá að vori lista yfir þær bækur sem liggja til grundvallar í spurningakeppninni um haustið og þeir sem áhuga hafa geta því byrjað að undirbúa sig strax fyrir komandi keppni. Gott samstarf er við Bókasafn Akraness og er bókalistinn ásamt eintökum af bókunum aðgengilegur þar á meðan skólasafnið er lokað yfir sumarið. Þegar þessi sömu nemendur mæta í skólann að hausti í 4. – 7.bekk, halda þeir áfram að lesa og keppnin hefst upp úr miðjum október eða eftir vetrarfrí.

Úrslitaviðureignin að þessu sinni var á milli liða 7. bekkjar og 4. bekkjar. Keppt er um farandbikar og fær árgangurinn nafnið sitt áritað á bikarinn. Einnig fær vinningsliðið í ár að velja 5-10 bækur sem verða keyptar inn fyrir skólasafnið. Úrslitin urðu þau að 7. bekkur vann með fimm stiga mun.  Liðið skipuðu Dagný Bára Guðjónsdóttir, Iðunn Eybjörg Halldórsdóttir, Marinó Bjarki Brynjarsson og Arna Guðný Gautadóttir, sem var leikari hópsins.

Lestur er bestur. Áfram bókaormar!

Myndir frá úrslitum Bókaorma Brekkó.