Geðlestin í heimsókn

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að  við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri  út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. 

Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Verkefnið er styrkt af félagsmála- og  heilbrigðisráðuneytunum.  

 Þau sem komu til okkar í dag voru Guðný frá Geðhjálp sem var með kynningu og reynslusögu og Emmsjé Gauti sem tók nokkur  lög með krökkunum. Mjög hressandi á mánudagsmorgni.