Litlu jólin 2018

Litlu jólin verða haldin hátíðleg fimmtudaginn 20. desember. Nemendur mæta þann dag í sínar stofur eins og hér segir:

1. - 3. bekkur mætir klukkan 9:15

4. - 6. bekkur mætir klukkan 8:20

8. - 10. bekkur mætir klukkan 9:30.

7. bekkur heldur sín litlu jól miðvikudaginn 19. desember á sal skólans klukkan 18:00. Þeir nemendur 7. bekkjar sem verða í forsöng og hljóðfæraleik á litlu jólunum daginn eftir mæta klukkan 8:20 líkt og nemendur í 4. - 6. bekk.  Allri dagskrá verður lokið klukkan 11:30 og þá eru nemendur komnir í jólafrí. Kennsla hefst aftur föstudaginn 4. janúar.