Skipulag skólastarfs vikuna 24. - 28. janúar

Kæru foreldrar

Vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann getum við ekki verið með kennslu í skólanum okkar í næstu viku. 

Við fengum húsnæði á öðrum stöðum fyrir miðstigs bekkina til að þeir geti komið í staðbundinn skóla frá og með þriðjudeginum. Á mánudaginn verður heimaskóli hjá 5. og 7. bekk og starfsstöðvarnar undirbúnar.

Skipulagið hjá bekkjunum verður svona:

1.og 2. bekkur: Á sömu starfsstöðvum og í þessari viku. Skóladagur frá 8:10-12:00. Frístundabörnin fá að borða og frístundin opnar kl. 12:00.

3. og 4. bekkur: Á sömu starfsstöðvum og í þessari viku. Skóladagur frá 8:10-12:00. Frístundabörnin fá að borða og eru í gæslu hjá okkur þar til frístundin þeirra opnar kl. 13:00.

5. bekkur: 

Mánudagur: Heimaskóli samkvæmt plani frá árgangateymi.

Þriðjudagur til föstudags: Nemendur mæta í Tónlistarskólann sem er staðsettur í sama húsi og Krónan. Vegna fjöldatakmarkana mæta þau í tveimur hópum. Hópaskiptingin er í höndum árgangateymisins og þið póst frá þeim varðandi þá skiptingu.

Skóladagurinn hjá hópi 1 hefst kl. 8:10 og lýkur kl. 11:00.

Skóladagurinn hjá hópi 2 hefst kl. 11:10 og lýkur kl. 14:00.

Íþróttir, sund og dans halda sér samkvæmt stundaskrá óháð því hvort nemendur eru í fyrri eða seinni hópi.

6. bekkur: 

Mánudagur: Á mánudaginn mæta nemendur í Oddfellow salinn, Kirkjubraut 54, gengið inn frá Háholti. 

Þriðjudagur til föstudags: Nemendur mæta í Oddfellow salinn, Vegna fjöldatakmarkana mæta þau í tveimur hópum. Hópaskiptingin er í höndum árgangateymisins og þið póst frá þeim varðandi þá skiptingu.

Skóladagurinn hjá hópi 1 hefst kl. 8:10 og lýkur kl. 11:00.

Skóladagurinn hjá hópi 2 hefst kl. 11:10 og lýkur kl. 14:00.

Íþróttir, sund og dans halda sér samkvæmt stundaskrá óháð því hvort nemendur eru í fyrri eða seinni hópi.

7. bekkur: 

Mánudagur: Heimaskóli samkvæmt plani frá árgangateymi.

Þriðjudagur til föstudags: Nemendur mæta í Jónsbúð, Akursbraut 13, við hliðina á Blikksmiðju Guðmundar.  Vegna fjöldatakmarkana mæta þau í tveimur hollum. Hópaskiptingin er í höndum árgangateymisins og þið póst frá þeim varðandi þá skiptingu.

Skóladagurinn hjá hópi 1 hefst kl. 8:10 og lýkur kl. 11:00.

Skóladagurinn hjá hópi 2 hefst kl. 11:10 og lýkur kl. 14:00.

Íþróttir og sund halda sér samkvæmt stundaskrá óháð því hvort nemendur eru í fyrri eða seinni hópi.

8.-10. bekkur:

Heimaskóli alla dagana en nemendur mæta í íþróttir og sund samkvæmt stundaskrá.