Fréttir

Allir lesa á alþjóðadegi læsis; Skorum á Grundaskóla

Alþjóðadagur læsis fer fram fimmtudaginn 8. september næstkomandi og þá munu allir nemendur og starfsfólk í Brekkubæjarskóla bresta í lestur. Lestrarstundin Allir lesa fer fram kl. 8.20-8.40 og hvetjum við foreldra og aðra aðstandendur til að koma og lesa með okkur.
Lesa meira

Sólin skín á skólalóðinni

Sólin hefur skinið á skólalóð Brekkubæjarskóla – í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Á dögunum skreyttu nemendur úr áttunda bekk ásamt Ruth Rauterberg, verkefnastjóra og rannsakanda, skólalóðina með myndarlegri sól. Auk þess að vera mikið augnayndi gegnir sólin mikilvægu hlutverki í frímínútum nemenda.
Lesa meira

Þú ert góð!

Þessi skilaboð og önnur í svipuðum dúr hafa birst vegfarendum í námunda við skólann. Þau eru afrakstur Smiðju á unglingastigi þar sem nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum þvert á árganga. Vonandi hefur þetta verkefni smitað gleði út í samfélagið
Lesa meira

Skólinn hefur verið settur!

Skólinn hefur verið settur! Brekkubæjarskóli var settur við hátíðlega athöfn í dag. Það var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti nemendum og foreldrum í íþróttahúsinu. Hefð hefur verið fyrir því að nemendur stígi á svið og spili undir skólasöngnum. Þar sem skólastarfið er ekki farið af stað tók starfsfólk sig til og stofnaði hljómsveit. Í stuttu máli - nemendur munu spila næst.
Lesa meira

Skólasetning 22. ágúst

Skólasetning Brekkubæjarskóla verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu mánudaginn 22. ágúst kl. 10:00. Þar verður stutt dagskrá og að henni lokinni fara nemendur með teymunum sínum yfir í skóla.
Lesa meira

Skólaslit

Lesa meira