Fjölmenni á sýningu unglingasdeildar

Mikið fjölmenni sótti sýningu nemenda unglingastigs á verkum sínum. Verkefnin eru afrakstur smiðju sem hefur verið í gangi síðustu vikurnar. 

Í smiðju er unnið þvert á árganga og námsgreinar og vinna nemendur að verkefnum á þann hátt sem þeim líkar best. Í nýlokinni smiðju var þemað Ævintýri og þjóðsögur. 

Á sýningunni mátti finna ýmis konar verkefni og má þar nefna frumsamda tónlist, myndbönd, spil, ljóðabækur, föt sem saumuð voru frá grunni og ýmislegt annað eins og sjá má á myndum sem finna má hér.