Hátónsbarkinn 2022

Loksins fá tónelskir unglingar aftur tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og munu okkar krakkar að sjálfsögðu ekki láta sitt eftir liggja. Tólf söngvarar úr báðum grunnskólunum keppast um hylli dómnefndar og mun einn þeirra hljóta titilinn Hátónsbarkinn 2022.
Átta Brekkubæingar eru í hópi keppenda og þó nokkrir hljóðfæraleikarar úr okkar röðum stíga á stokk.
Hátónsbarki síðasta árs, hin bráðefnilega Hanna Bergrós, mun einnig koma fram ásamt hljóðfæraleikurum.
Það er því tilvalið að fjölmenna og styðja við bakið á flottu unglingunum okkar sem eru að koma fram í fyrsta sinn eftir mjög langt hlé.
Sjáumst á fimmtudagskvöldið í Tónbergi!