Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna

Síðastliðið miðvikudagskvöld var lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi haldin í Tónbergi. Þar var boðið upp á upplestur 12 nemenda úr 7. bekkjum Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Að auki var boðið upp á tónlistaratriði nemenda úr Tónlistarskóla Akraness og upplestur á ljóði á dönsku.

Allir nemendur 7. bekkjar hafa æft upplestur á ljóðum og sögum í allan vetur og í lok febrúar voru 6 bestu lesararnir úr hvorum skóla valdir til að lesa á lokahátíðinni. Lesefnið samanstóð af texta úr bókinni Blokkin á heimsenda, ljóðum eftir borgfirskar konur og síðan ljóð sem krakkarnir völdu sjálfir. Þriggja manna dómnefnd fékk síðan það erfiða verkefni að velja besta lesarann úr hvorum skóla fyrir sig. Dómnefndina skipuðu þau Halldóra Jónsdóttir, Jakob Þór Einarsson og séra Þráinn Haraldsson.

Allir þátttakendur stóðu sig með stakri prýði og eiga mikið lof skilið fyrir frábæra frammistöðu. Leikar fóru þó þannig að Nikola Jadwizyc var valin upplesari Brekkubæjarskóla og Sigurður Brynjarsson upplesari Grundaskóla. 

Einnig voru afhentar viðurkenningar fyrir teikningar á boðskort sem var sent á gesti hátíðarinnar. Það voru þær Ásrún Silja Andradóttir og Nikola Jadwizyc sem fengu þær viðurkenningar. 

Myndir frá lokahátíðinni.