Góðan daginn faggi

Nemendur níunda og tíunda bekkjar sóttu nýverið leiksýninguna Góðan daginn faggi. Sýningin er sjálfsævilegur söngleikur frá Þjóðleikhúsinu. Bjarni Snæbjörnsson, leikari segir sögu sína í gegnum söng og leik en sýningin byggir á dagbókarfærslum hans. 

"Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.

Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra.

Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna." Segir í tilkynningu um sýninguna. 

Nemendur okkar voru til fyrirmyndar á sýningunni og fræddust, spurðu spurninga og komu fram af virðingu.