Óskilamunir

Skólaliðar halda til haga  óskilamunum s.s. fatnaði, íþróttapokum og þess háttar sem finnast í skólanum frá degi til dags. Alltaf er hægt að hafa samband eða koma í skólann á dagvinnutíma til að spyrjast fyrir um og sækja óskilamuni. Á foreldraviðtalsdögum og síðustu skóladögum að vori eru óskilamunir sem safnast hafa upp settir fram niðri í setustofu unglinga og/eða á gangi á 1. hæð þar sem nemendur og foreldrar geta nálgast sitt dót. Einnig halda skólaliðar úti Facebook síðunni Óskilamunir Brekkubæjarskóla þar sem settar eru inn myndir af ýmsu sem finnst í skólanum, https://www.facebook.com/groups/2294173277490567

Símar, úr, skartgripir, lyklar og þess háttar óskilamunir eru geymdir á skrifstofu skólans og eigendur geta nálgast þá þar. 

Í íþróttahúsinu við Vesturgötu og í Bjarnalaug safnast einnig oft upp íþróttafatnaður, handklæði og fleira sem nemendur gleyma eftir íþróttatíma. Hægt er að hafa samband við starfsfólk íþróttamannvirkjanna á opnunartíma til að nálgast þá hluti.