Jólamorgunstund

Það verður mikið um dýrðir á jólamorgunstund Brekkubæjarskóla sem haldin verður fimmtudaginn 14. desember kl. 9.00 í íþróttahúsinu við Vesturgötu.  Nemendur úr 1., 7., og 8. bekk munu sýna atriði og að auki verða eftirfarandi atriði á efnisskránni:

- Brekkóbrass, nýstofnuð lúðrasveit, mun stíga á stokk. 
- Unglingar munu flytja tónlistaratriði og sýna fimleika. 
- Samsöngur með undirleik nemenda úr tónlistarvali og Brekkókrakka úr tónlistarskólanum. Unglingar ásamt nemendum úr 6. og 2. bekk munu leiða sönginn.
- Að sjálfsögðu munum enda svo herlegheitin á dansi. 

Allir velkomnir í jólaskapi!