Alexander Aron fræðir unglingastig í viku 6

Það er alltaf gaman að taka á móti gestum í Brekkubæjarskóla. Fyrrum nemendur sem koma með fræðslu í skólann eru þó sérstaklega skemmtilegir gestir. Það gerðist í dag þegar Alexender Aron Guðjónsson heimsóttir unglingastig og fræddi um hinseginleikann. 

Alexander Aron Guðjónsson er fyrrum nemandi Brekkubæjarskóla og stjórnarmaður í Hinsegin Vesturland. Hann tók á móti nemendum unglingastigs á sal og ræddi um hinseginleikann, ferðalag sitt, minningar sínar af því að vera unglingur í Brekkubæjarskóla. Fyrirlestur Alexanders var á léttum nótum og mjög áhugaverður en hann opnaði fyrir spurningar og stóð fyrir svörum. 

Fyrirlestur Alexanders Arons er hluti af Viku 6, kynfræðsluviku. Í gær, fimmtudag fóru nemendur á milli fræðsluerinda þar sem kynheilbrigði og kynferðisleg hegðun voru í brennidepli út frá sjö mismunandi sjónarhornum.