Fjölgreindaleikar

Fjölgreindaleikarnir eru haldnir í janúar ár hvert og taka allir nemendur skólans þátt í þeim. Settar eru upp fjölmargar stöðvar um allan skóla og á hverri stöð eiga nemendur að vinna verkefni sem reyna á mismunandi hæfileika og færni. Nemendum er skipt upp í aldursblandaða hópa og reyna verkefnin gjarnan á samvinnu hópmeðlima á mismunandi aldri. Einungis er unnið  í 10 mínútur á hverri stöð þannig að allir fá að spreyta sig á öllum verkefnum sem í boði eru.  Myndir frá Fjölgreindaleikunum má finna á þessari slóð hér.