Fjölgreindaleikar

Fjölgreindaleikarnir fóru fram í dag, en þeir fara fram einu sinni á ári í Brekkubæjarskóla. Þá vinna allir nemendur skólans saman í aldursblönduðum hópum að hinum ýmsu verkefnum sem snerta ólíkar tegundir greinda sbr. myndin hér til hliðar. Settar höfðu verið upp fjölmargar verkefnastöðvar um allan skóla og vann hver hópur í 10 mínútur á hverri stöð. Eldri nemendur sáu um að leiða hópana milli stöðva og sáu um að halda hópunum saman. Í morgunfrímínútunum fóru allir út á sama tíma og tóku þátt í ýmsum leikjum sem íþróttakennararnir höfðu undirbúið á skólalóðinni.

Dagurinn gekk í alla staði mjög vel og unnu nemendur frábærlega saman. Dæmi um verkefni voru t.d. stærðfræðibingó, Dælan (að hætti Kappsmáls þáttanna), snú-snú, Ubongo, skák, Just Dance, gerð orðalistaverks og margt fleira. 

Myndir má sjá með því að smella hér.