Skólasetning 24. ágúst

(English and Polish versions below)

Ágætu foreldrar 

Við byrjum skólaárið í svipuðum aðstæðum og við lukum því varðandi þátttöku foreldra í skólastarfinu. Flesta daga ársins finnið þið lítið fyrir því en skólasetningardagur er hátíðisdagur í hugum okkar flestra og þá vill sem betur fer stór hluti foreldra mæta með börnunum sínum. Þetta á sérstaklega við um foreldra fyrstu bekkinga sem eru að hefja tíu ára grunnskólagöngu og stíga stórt skref í lífinu.

Okkur ber að framfylgja sóttvarnarreglum og tryggja að fullorðnir (aðrir en starfsmenn) geti virt tveggja metra regluna. Því er útilokað að hafa skólasetningu í íþróttahúsinu eins og verið hefur. Ekki gengur heldur að foreldrar fylgi nemendum í kennslustofur því við þær aðstæður getum við ekki tryggt tveggja metra regluna eða virt fjöldatakmarkanir.

Við erum öll komin í góða æfingu með að breyta skipulagi og laga okkur að þessari veiru sem stjórnar öllu og erum búin að endurskipuleggja skólasetninguna.

Okkur finnst lykilatriði að foreldrar fyrstu bekkinga geti fylgt börnunum sínum á skólasetningu og við vitum að allir hafa fullan skilning á því. Foreldrar barna í 2.-10. bekk geta aftur á móti ekki fylgt sínum börnum inn en þið getið að sjálfsögðu fylgt þeim á skólalóðina þar sem kennarar taka á móti þeim.


Skólasetning er mánudaginn 24. ágúst. 

1. bekkur: 

  • Nemendur mæta í þremur hollum á skólasetningu í sal skólans. Skipt eftir stafrófsröð. 
    • Kl. 9:00 – nemendur; Agnes til Halldórs Loga 
    • Kl. 9:45 – nemendur; Hanif til Patryk 
    • Kl. 10:30 – nemendur; Sandra til Þorsteins 
  • Gengið inn um bláa innganginn þar sem gengið er beint inn í salinn 
  • Tveir foreldar mega fylgja hverju barni. Raðað er upp í salinn út frá því. 

2. – 10. bekkur 

  • Nemendur mæta kl. 13:00 fyrir utan skólann, Heiðarbrautarmegin
  • Umsjónarkennarar hitta nemendur úti á skólalóð og fara svo með þeim upp í stofu.   

Fyrsti kennsludagur er þriðjudagurinn 25. ágúst. Kennsla hefst kl. 8:10 og skólinn opnar kl. 7:45. Þá eru skólaliðar í öllum anddyrum til að taka á móti nemendum. Frá 8:00 eru stuðningsfulltrúar komnir inn í stofur og/eða á ganga. Vegna sóttvarnarreglna þurfa foreldrar að kveðja börnin sín fyrir utan skólann. Í einstaka tilfellum munu foreldrar þurfa að fylgja börnum sínum inn og við biðjum ykkur að hafa umburðarlyndi gagnvart því að það eigi bara við í einstaka tilfellum. Þeir foreldrar sem þurfa að koma inn verða að vera með hanska. 

Til að öllum finnist þeir öruggir við þessar undarlegu aðstæður sem við stöndum frammi fyrir núna þá ætlum við að biðja alla sem eiga erindi í skólann að koma inn um Kirkjuhvolsanddyrið og gefa sig fram við skrifstofuna. Þannig tryggjum við sóttvarnir eins og hægt er án þess að hafa skólann læstan en það viljum við ekki þurfa að gera aftur. 

Með fyrirfram þökk fyrir að sýna skilning og vinna þetta eins vel og við getum. Saman getum við allt. 

Við hlökkum til samstarfsins við ykkur í vetur. 

Starfsfólk Brekkubæjarskóla

Informacje po polsku

Information in English