Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna

Á alþjóðadegi kennara, þann 5. október, var Brekkubæjarskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna í flokknum framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Tilnefningin er fyrir fyrir þróun árangursríkrar teymiskennslu, inngildandi starfshætti, nemendalýðræði og virkni nemenda.
Tilnefninguna í heild má sjá hér á vef Íslensku menntaverðlaunanna https://skolathroun.is/brekkubaejarskoli/.
Við erum óendanlega stolt af þessari tilnefningu og er hún okkur mikil hvatning til að halda áfram að þróa starfshætti okkar í samvinnu við foreldra og nærsamfélagið með farsæld barna að leiðarljósi