Tíundi bekkur hverfur aftur til níunda áratugarins

Nemendur tíunda bekkjar hafa í vetur unnið að ýmsum þemaverkefnum sem snúa að tilteknum tímabilum. Nýjasta þemað hjá þeim er níundi áratugurinn. 

Í þemanámi er tiltekið viðfangsefni skoðað út frá mörgum námsgreinum sem eru samþættar í fjölbreytt verkefni. Í nýjasta þema tíunda bekkjar var níundi áratugur síðustu aldar (árin 1980-1989) skoðaður út frá þeirri menningu og heimsviðburðum sem gerðust á þessum árum.  

Má þar nefna kjör Vigdísar Finnbogadóttur, leiðtogafundurinn í Höfða, morðið á John Lennon og tónlist Bubba Morthens. 

Í lok lotunnar spreyttu nemendur sig á þeirri íþrótt sem var afar vinsæl á níunda áratugnum: Aerobik! 

Mikil ánægja var með íþróttatímann og mættu nemendur í búningum í anda níunda áratugarins. 

Hér má sjá myndir af aerobik tíma tíunda bekkjar.