Viðamiklar framkvæmdir að hefjast

Á dögunum undirrituðu Akraneskaupstaður og SF smiðir verksamning um fyrirhugaðar framkvæmdir í Brekkubæjarskóla 

Hér er um viðamikið verkefni að ræða sem felur í sér  endurgerð 1. hæðar, um 2.100 fm, auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2 og 3 hæð. Verkið skiptist í tvo áfanga og á fyrri áfanga að vera lokið í árslok 2024. Sá áfangi felur í sér:

  • Lyftan endurnýjuð og stækkuð
  • Kennslueldhús verður endurnýjað
  • Nýtt anddyri verður byggt
  • Rými fyrir sérkennslustofur, sálfræðing, námsráðgjafa, hjúkrun og tónmennt verður byggt á jarðhæð.

Seinni áfanga á að vera lokið í árslok 2025 en í þeim áfanga felst eftirfarand:

  • Salurinn verður endurnýjaður og útbúið rými fyrir lyftu
  • Þar sem áður voru tónlistarstofa, námsráðgjafar og sálfræðingar verður gerð smíðastofa, myndmenntastofa og textílkennslustofa ásamt nýjum salernum.

Á meðan verki stendur verður eðlilega töluvert rask í skólabyggingunni og einhver svæði lokuð á meðan, en við erum ýmsu vön í Brekkubæjarskóla og hlökkum mikið til þegar framkvæmdum lýkur og við fáum endurnýjaða og bætta aðstöðu.