Í dag fengu krakkarnir í 1.bekk aldeilis góða heimsókn þegar fulltrúar Kiwanisklúbbsins Þyrils komu og gáfu öllum reiðhjólahjálma. Með þeim var Karen Lind Ólafsdóttir sem fræddi krakkana um hvernig ætti að stilla hjálmana og hvernig þeir komi í veg fyrir höfuðáverka. Við færum þeim Kiwanismönnum og Karen Lind bestu þakkir fyrir heimsóknina og frábæra gjöf.
|
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brekko.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 13:30 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brekko.is.