23.10.2026
Brekkubæjarskóli tekur þátt á Vökudögum en í Tónbergi er sýning á sjálfsmyndum allra nemenda skólans þar sem hver og einn árgangur á sinn lit og myndar þar eina heild.
Lesa meira
22.10.2026
Dagana 15. september til 6. október fór Svakalega lestrarkeppnin fram í 108 skólum. Nemendur í 1.-7. bekk tóku þátt og söfnuðu lestrarmínútum fyrir sinn skóla. Krakkarnir í Brekkó tóku vel við sér og lásu af kappi, mörg lásu heima hvern einasta dag keppninnar, þau lásu líka heilmikið í skólanum og jafnvel úti í frímínútum!
Lesa meira
14.10.2026
Haustfrí Brekkubæjarskóla verður dagana 19. og 20. október. Skólastarf hefst svo að nýju miðvikudaginn 21. október. Við vonum að sem flestir njótis frísins og komi endurnærð tilbaka til þess að takast á við seinni helming annarinnar.
Lesa meira
14.10.2026
Við viljum þakka foreldrum og forráðamönnum kærlega fyrir góða mætingu á fræðslukvöldið í gær. Kvöldið heppnaðist afar vel og voru erindin bæði áhugaverð og gagnleg.
Lesa meira
12.10.2026
Á morgun þriðjudaginn 13. október verður fræðslukvöld fyrir foreldra en í boði verða tvö mjög áhugaverð erindi á dagskrá.
Lesa meira
30.09.2026
Fimmtudaginn 1. október er samtalsdagur hjá okkur í Brekkubæjarskóla.
Frístund fyrir nemendur 1. og 2. bekkjar er opin frá kl. 12:00 fyrir þá nemendur sem skráðir eru í frístund.
Lesa meira
24.09.2026
Brekkubæjarskóli hefur hafið innleiðingu Heillaspora (e. Nurture).
Heillaspor er heildræn og tengslamiðuð nálgun í skóla- og frístundastarfi þar sem áhersla er lögð á öryggi, tengsl, inngildingu og virka þátttöku allra barna. Fræðilegur grunnur Heillaspora leggur áherslu á að góð tengsl og tilfinningin fyrir því að tilheyra séu mikilvægar forsendur fyrir vellíðan, þroska og námi.
Lesa meira
18.09.2026
Þriðjudaginn 15. september hófst Svakalega lestrarkeppnin 2026. Keppnin er haldin á landsvísu og að þessu sinni ákváðum við í Brekkó að vera með! Í Svakalegu lestrarkeppninni keppast nemendur í 1.-7. bekk við að lesa sem flestar mínútur í þrjár vikur. Sá skóli, þar sem nemendur lesa flestar mínútur að meðaltali, vinnur keppnina og fær titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins!
Lesa meira
15.09.2026
Á meðal valgreina á unglingastigi er menningarferð til Reykjavíkur.
Lesa meira