Fræðslusmakk í 8.bekk

Nemendur 8. bekkjar buðu öðrum nemendum og starfsfólki í ,,fræðslusmakk" í gær. Þar sýndu þau og kynntu verkefni sem þau hafa unnið ötullega að síðustu vikur. Það kenndi ýmissa grasa á fræðslusmakkinu en þar mátti m.a. fræðast um hesta, víkinga, leikföng barna fyrr á öldum, eldvirkni og margt fleira. Krakkarnir svöruðu spurningum gesta og höfðu greinilega undirbúið sig vel - frábær vinna hjá þeim 🙂

Myndir má sjá hér.