Múrbalar fengu heldur óvenjulegt hlutverk þegar nemendur í 5. og 6. BS tóku þátt í Múrbalaslætti með Kela og Sigga, sem kom í heimsókn á vegum Listar fyrir alla.
Hver og einn fékk múrbala til að tromma á og síðan var slegið í takt. Nemendur lærðu „grúv“, „breik“ og alls kyns takta. Það fór því varla framhjá neinum að eitthvað skemmtilegt var í gangi!
Keli, trommari Agent Fresco og tónlistarkennari, og Sigurður, slagverksleikari og kennari við Tónskóla Sigursveins, stýrðu fjörinu. Þrátt fyrir mikinn hávaða voru skilaboðin frá þeim félögum skýr: Nemendur Brekkó eru bæði taktvissir og taktföst!
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis. Verkefninu er ætlað að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum, óháð búsetu og efnahag.