Nemendur 10.BS eru Varðliðar umhverfisins 2028

Nemendur 10.bekkjar voru í gær útnefndir Varðliðar umhverfisins 2026 af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Viðurkenninguna fékk 10.bekkur fyrir verkefnið ,,fræðslusmakk" þar sem nemendur unnu afar vönduð og fræðandi verkefni varðandi umhverfis- og loftslagsmál og kynntu fyrir öðrum nemendum og foreldrum. Í rökstuðningi frá ráðuneytinu stendur m.a.:
,,Það er mat valnefndar að nemendur 10.bekkja Brekkubæjarskóla séu þess verðug að vera Varðliðar umhverfisins 2026. Viðurkenninguna hljóta nemendur fyrir vel unnin verkefni, sem einkenndust af hugmyndaauðgi og skapandi nálgun, með áherslu á fræðslu, vitundarvakningu og miðlun á mikilvægum umhverfisskilaboðum".
 
Nánar má lesa um Varðliða umhverfisins á þessari frétt á vef stjórnarráðsins.
 
Hér eru myndir frá fræðslusmakkinu sem var haldið í febrúar s.l.