Öflugir krakkar í öflugu samfélagi

3. flokkur karla
3. flokkur karla

Skólinn er stór hluti af lífi barna og ungmenna en mikilvægt nám og þroski á sér líka stað utan veggja hans. Það sjáum við vel hjá nemendum okkar sem taka virkan þátt í fjölbreyttu íþróttastarfi ÍA hér á Akranesi.

Þar æfa þau með félögum sínum, setja sér markmið og læra mikilvægi samvinnu, seiglu og þess að leggja sig fram. Íþróttastarfið er þannig mikilvægur vettvangur fyrir börn og ungmenni til að vaxa, takast á við áskoranir og upplifa gleðina sem fylgir því að tilheyra góðum hópi.

Og stundum kemur líka uppskerutími eftir miklar æfingar og góða ástundun. Nemendur okkar eru reglulega að standa sig vel í sínum greinum og ná góðum árangri. Að þessu sinni langar okkur sérstaklega að segja frá fjórum nemendum sem hafa verið að gera góða hluti í sínum íþróttum.

Dariel Anton Davíðsson Orellana, nemandi í 8. BS náði frábærum árangri í byrjun nóvember þegar hann vann sér inn gullmerki í diplómahnefaleikum á móti sem haldið var í aðstöðu Hnefaleikafélags Kópavogs. Mótið var á vegum Hnefaleikasambands Íslands en slík mót eru haldin reglulega yfir árið. Árangur Dariels er sérstaklega glæsilegur þar sem hann er aðeins fjórði iðkandinn í sögu hnefaleikadeildar ÍA til að vinna sér inn gullmerki og jafnframt sá yngsti sem hefur náð þeim áfanga.
   

Davíð Antti Liljar Geirsson, nemandi í 10. BS varð þrefaldur meistari með 3. flokki ÍA í fótbolta í sumar en flokkurinn varð Íslands- og bikarmeistari og ReyCup meistari að auki. Davíð, sem var á yngra ári í flokknum í sumar, spilaði 32 leiki með liðinu og skoraði í þeim 23 mörk. 
   

Karen Anna Orlita, nemandi í 9. BS krækti sér í silfur, brons og landsliðslágmark um nýliðna helgi á Íslandsmeistaramótinu. Karen synti gríðarlega vel í 100 m skriðsundi á síðasta degi mótsins í 25 m laug. Hún vann til silfurverðlauna í unglingaflokki á tímanum 1:00,03 mín., sem var bæting um 0,6 sekúndur. Í úrslitum í fullorðinsflokki gerði Karen Anna sér lítið fyrir og synti á 59,60 sekúndum, tryggði sér bronsverðlaun og fór þar með í fyrsta sinn undir eina mínútu í 100 m skriðsundi.

Þessi glæsilegi tími er jafnframt landsliðslágmark fyrir Framtíðarhóp Sundsambands Íslands.

   

Talía Konráðsdóttir, nemandi í 10. BS, gerði það í mótoríþróttum á árinu. Hún varð Íslandsmeistari í enduro í opnum kvennaflokki og hafnaði í 2. sæti á Íslandsmótinu í motocrossi. Þá steig hún stórt skref þegar hún tók þátt í sinni fyrstu hard enduro keppni, og það á alþjóðlegum vettvangi í Kemer í Tyrklandi. Þar varð hún önnur í youth-flokki og þriðja í kvennaflokki keppninnar.

Í lok ársins hlaut Talía svo glæsilega viðurkenningu þegar hún var tilnefnd sem mótorhjóla- og snjósleðakona ársins hjá MSÍ.

 

Okkur finnst mikilvægt að fagna þessum hluta af lífi nemenda okkar. Við erum stolt af þeim árangri sem þau ná, en ekki síður af dugnaðinum, gleðinni og framlaginu sem liggur þar að baki.

Við tökum á móti öllum ábendingum um góðan árangur okkar nemenda í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Hægt er að senda texta og myndir á asmundur@brekko.is.