Skuggakosningar í 9.bekk

Miðvikudaginn 13. maí tóku nemendur í 9. BS viðtöl við frambjóðendur frá öllum framboðum á Akranesi. Nemendur voru að gera fréttir um sveitastjórnakosningarnar og voru búin að kynna sér stefnur flokkanna og undirbúa góðar spurningar fyrir viðmælendur sína.

Viðtölin gengu frábærlega og var mikil ánægja á meðal nemenda og frambjóðenda með viðtölin.

Föstudaginn 15. maí fóru svo fram skuggakosningar í 9. BS. Á kjörskrá eru 57 (teymið fékk að kjósa líka) og kosningaþátttaka var 71,9%.

Flest atkvæði fékk Miðflokkurinn, eða 18 atkvæði (43,9%) og næstflest atkvæði fékk Samfylkingin, eða 9 atkvæði (22%). Framsókn og frjálsir fengu 5 atkvæði (12,2%) og Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn fengu 3 atkvæði hvor (7,3%). Auðir og ógildir seðlar voru 3.

 Myndir má sjá hér.