Svakalega lestrarkeppnin 2026 - 14. sæti

Dagana 15. september til 6. október fór Svakalega lestrarkeppnin fram í 108 skólum. Nemendur í 1.-7. bekk tóku þátt og söfnuðu lestrarmínútum fyrir sinn skóla. Krakkarnir í Brekkó tóku vel við sér og lásu af kappi, mörg lásu heima hvern einasta dag keppninnar, þau lásu líka heilmikið í skólanum og jafnvel úti í frímínútum!

Síðustu daga keppninnar var gefið enn meira í og allt þetta skilaði okkur frábærum árangri því hver nemandi las að meðaltali 878 mínútur á meðan keppninni stóð. Við tókum 14. sætið og fengum viðurkenningarskjal frá þeim Evu Rún og Blæ sem standa fyrir keppninni. Við vorum ekki lengi að setja viðurkenningarskjalið í ramma og stilla upp á skólasafninu.

Við erum mjög stolt af nemendum okkar og viljum líka þakka fjölskyldum þeirra fyrir að taka svona vel við sér, hvetja krakkana til dáða heima og gefa lestrinum gott rými þessar þrjár vikur.

Vonandi halda allir áfram að vera svona duglegir að lesa heima því það er fljótt að skila árangri og meiri lestrargleði!