Nú eru úrslitin ljós í hinni árlegu spurningakeppni Bókaormar Brekkó. Það eru nemendur í 4.-7. BS sem taka þátt. Undirbúningurinn hófst strax í vor því þá var bókunum 14 fyrst stillt upp svo að nemendur gætu byrjað að lesa þær. Svo voru bækurnar fluttar á Bókasafn Akraness yfir sumarið og lestrinum haldið áfram.
Í haust var svo valið í lið og hófst fyrsta umferð keppninnar í byrjun október. Hver bekkur tefldi fram tveimur liðum og það voru því átta lið sem tókust á í hörku útsláttarkeppni. Það þarf mikla lestrarhesta til að lesa 14 bækur og svara alls konar spurningum upp úr þeim, allt frá hraðaspurningum yfir í dýpri spurningar þar sem nemendur þurfa jafnvel að lesa á milli línanna og túlka efni bókanna. Svo þarf helst allur bekkurinn að vera duglegur að lesa bækurnar til að vel gangi því sumum spurningum máttu keppnisliðin ekki svara heldur bara áhorfendur.
Fyrsta umferð fór þannig að bæði lið 5. BS komust áfram í undanúrslit ásamt báðum liðum 6. BS. Í undanúrslitum voru harðar rimmur því öll fjögur liðin voru firnasterk. En niðurstaðan varð sú að bæði lið 6. BS komust áfram í úrslitin sem fóru fram í síðustu viku, þann 10. nóvember.
Úrslitakeppnin reyndist síðan æsispennandi og keppnisskapið var ekkert minna þó að bæði liðin kæmu úr sama bekk. Það munaði aðeins fjórum stigum á liðunum þegar svarta lið 6. BS bar sigurorð af fjólubláa liði bekkjarins.
Sigurlaunin voru að venju farandbikar fyrir fyrsta sætið og ísveisla fyrir fyrsta og annað sætið. Í dag fóru því bæði liðin, sem kepptu í úrslitum, í bæinn með Jónellu skólasafnskennara. Þau fóru með bikarinn í áletrun hjá Guðmundi B. Hannah og hámuðu svo í sig ís á Frystihúsinu. Þetta var stórskemmtileg bæjarferð, þvílíkir meistarar og til hamingju 6. BS!
|
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brekko.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 13:30 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brekko.is.