Akranes - Barnvænt samfélag

Í morgun var viðburður á lóð Brekkubæjaskóla í tilefni þess að Akraneskaupstaður fékk í dag formlega viðurkenningu UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag. Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri, afhenti skólastjóra skjal til viðurkenningar á framlagi skólans til verkefnisins, danshópur tók sporið og einnig voru sungin saman tvö hressileg lög. Að auki fékk skólinn leikjakassa að gjöf með böndum, krítum, boltum og fleiru skemmtilegu 🙂

Nokkrar myndir frá athöfninni má sjá hér.