Á meðal valgreina á unglingstigi var í boði að velja menningarferð til Reykjavíkur en farið var með hóp unglinga í strætó í höfuðborgina í góðu veðri í fylgd listgreinakennara skólans. Farið var að Hallgrímskirkju, nesti borðað í garðinum fyrir utan safn Einars Jónssonar og styttur í garðinum skoðaðar. Gengið niður Skólavörðustíg, Laugaveg og niður að Listasafni Íslands þar sem sýning Bjarkar Guðmundsdóttur var skoðuð. Síðan var gengið að Tjörninni, á Austurvöll, og svo var Listasafn Reykjavíkur heimsótt þar sem sýningar Erró og Karin Sander voru skoðaðar. Að loknum góðum degi í góðu veðri var haldið heim á leið með strætó.
Hægt er að skoða myndir frá deginum hér.
|
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brekko.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 13:30 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brekko.is.