Menningarferð á unglingastigi

Á meðal valgreina á unglingstigi var í boði að velja menningarferð til Reykjavíkur en farið var með hóp unglinga í strætó í höfuðborgina í góðu veðri í fylgd listgreinakennara skólans. Farið var að Hallgrímskirkju, nesti borðað í garðinum fyrir utan safn Einars Jónssonar og styttur í garðinum skoðaðar. Gengið niður Skólavörðustíg, Laugaveg og niður að Listasafni Íslands þar sem sýning Bjarkar Guðmundsdóttur var skoðuð. Síðan var gengið að Tjörninni, á Austurvöll, og svo var Listasafn Reykjavíkur heimsótt þar sem sýningar Erró og Karin Sander voru skoðaðar. Að loknum góðum degi í góðu veðri var haldið heim á leið með strætó. 

Hægt er að skoða myndir frá deginum hér.