Foreldrafræðsla í Tónbergi

Á morgun þriðjudaginn 13. október verður fræðslukvöld fyrir foreldra en í boði verða tvö mjög áhugaverð erindi á dagskrá.

Stolin athygli eiganda síns: Þau Skúli Bragi Geirdal og Katrín Ómarsdóttir frá Netvís, taka fyrir atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varasta og veita góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum; hvernig eru leikir og öpp hönnuð til að stela athygli okkar og hvað við getum gert til að taka stjórnina. 

Listin að vera leiðinlegt foreldri: Ársæll Már Arnarson, prófessor við Háskóla Íslands, fer yfir það með foreldrum hvernig gott sé að setja mörk og hvers vegna. Það er klemma að vera "leiðinlegt foreldri" og banna barninu sínu það sem "allir" aðrir leyfa. Það er líklega ekki það sem maður sá fyrir sér. 

Hvetjum foreldra til að taka tímann frá og kíkja á þessi athyglusverðu og brýnu erindi sem eiga svo sannarlega við í okkar daglega lífi.