Fræðslusmakk 10.bekkjar

Nemendur 10.bekkjar eru að undanförnu búnir að vera að vinna með umhverfismál og s.l. föstudag buðu þeir öðrum nemendum  að koma á svokallað ,,fræðslusmakk" í sal skólans. Þar sýndu krakkarnir og kynntu afrakstur umhverfisþemans og mátti þar sjá fjölbreytt og vönduð verkefni. Einnig var foreldrum 10.bekkinganna boðið að koma og sjá verkefnin daginn áður. 
Virkilega flott vinna hjá krökkunum og greinilegt að þau höfðu lært heilmikið um umhverfismál - sjón er sögu ríkari!