Lokaferð 10. bekkinga

Það má með sanni segja að lokaferðin hafi verið hápunktur alls skólaársins hjá 10.bekk! Það var fullt af skemmtilegri dagskrá og alltaf eitthvað í gangi, þannig að engum þurfti að leiðast! Ferðinni var heitið í Skagafjörðinn og gistum við í Varmahlíð.
Við prófuðum meðal annars wipe-out brautina í Bakkaflöt sem reyndi á jafnvægi og úthald! Klettaklifrið var mjög skemmtilegt, þar var í boði að klifra og síga ásamt því að margir fóru í zipline. Við fórum einnig í river-rafting sem var algjör adrenalínsprauta og smellpassaði fyrir ævintýragjarna hópinn okkar. Margir nemendur tala um að það hafi verið hápunktur ferðarinnar!
Svo var paintball þar sem keppnisskapið var allsráðandi, og búbblubolti sem var hreint út sagt sprenghlægilegur!
Seinni dagurinn endaði svo á kvöldvöku þar sem krakkarnir stigu á stokk með allskonar atriði – söng, dans, gamanleik og margt fleira. Það var virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt og létu ljós sitt skína. Stemningin var dásamleg, allir voru í góðum gír og greinilegt að hópurinn er samheldinn og öll til í að styðja hvort annað.
Krakkarnir stóðu sig frábærlega í einu og öllu – kurteisir, jákvæðir og alltaf tilbúnir að taka þátt. Við getum ekki annað en hrósað þeim fyrir frábæra hegðun og samveru – og ekki skemmdi heldur að veðrið var algjör draumur!
Ferðin verður seint gleymd og skilur eftir sig fullt af góðum minningum sem munu fylgja okkur lengi.
Myndir úr þessari mögnuðu lokaferð má sjá með því að smella hér.