Lokahátíð upplestrarkeppninnar

Miðvikudagskvöldið 18. mars fór fram lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi í Tónbergi. Þar lásu 12 nemendur 7.bekkja úr Brekkubæjar- og Grundaskóla upp úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson, valin ljóð um fugla í íslenskri náttúru og ljóð sem krakkarnir völdu sjálfir. Einnig flutti Aldís Ylfa Heimisdóttir ávarp, flutt var tónlistaratriði og viðurkenningar veittar fyrir teikningar sem fengu að prýða boðskortin sem send voru út vegna lokahátíðarinnar. Það voru þær Laura Szal og Laufey Svanbergsdóttir sem fengu viðurkenningu fyrir teikningar. 
Allir krakkarnir sem fóru í pontu og lásu upp stóðu sig með eindæmum vel og höfðu greinilega lagt sig mikið fram við æfingar. Þriggja manna dómnefnd fékk svo það erfiða verkefni að velja bestu upplesarana úr hvorum skóla fyrir sig og fóru leikar svo að Gunnar Kristian Arnarsson Wessman var valinn upplesari Brekkubæjarskóla og Laufey Svanbergsdóttir var valin upplesari Grundaskóla. Til hamingju krakkar!
Myndir frá lokahátíðinni má sjá með því að smella hér.