Það hefur verið líflegt í Brekkubæjarskóla í haust og fjölbreyttur hópur gesta hefur lagt leið sína til okkar. Slíkar heimsóknir eru kærkomin viðbót við skólastarfið og færa okkur nýja þekkingu, reynslu og sjónarhorn.
Nemendur okkar hafa meðal annars fengið heimsóknir frá rithöfundum sem hafa rætt við þau um bækur, lestur og sköpun. Þá höfum við fengið góða gesti frá Netvís, skrifstofu Alþingis og samfélagslögreglunni sem hafa miðlað fræðslu og þekkingu til nemenda. Heimsóknir sem þessar auka fjölbreytni í náminu og gefa nemendum tækifæri til að fræðast, spyrja spurninga og kynnast ólíkum viðfangsefnum frá nýju sjónarhorni.
Heimsóknir sem efla faglegt starf
Það eru þó ekki eingöngu nemendur sem njóta góðs af heimsóknum í skólann. Við fáum reglulega til okkar fagfólk sem vinnur með starfsfólki að fræðslu og starfsþróun. Slíkar heimsóknir skapa dýrmæt tækifæri til samtals, ígrundunar og miðlunar þekkingar og styðja okkur í stöðugri þróun skólastarfsins.
Jafnframt tökum við reglulega á móti starfsfólki annarra skóla sem kemur til að kynna sér starfið okkar. Gestirnir koma bæði úr íslensku skólasamfélagi og erlendis frá. Síðastliðið ár höfum við meðal annars tekið á móti skólafólki frá Slóveníu, Belgíu, Frakklandi, Hollandi og eftir áramót er von á öðrum hópi frá Belgíu.
Teymiskennslan vekur áhuga
Starfsemi Brekkubæjarskóla hefur vakið áhuga þeirra sem hingað koma og þá sérstaklega teymiskennslan okkar. Þar leggjum við áherslu á samstarf ólíkra fagstétta, en uppistaðan í teymunum eru kennarar, fagaðilar og stuðningsfulltrúar sem vinna saman að námi, þroska og velferð nemenda.
Það er ánægjulegt þegar aðrir vilja kynna sér það sem við erum að gera, en slíkar heimsóknir eru ekki síður lærdómsríkar fyrir okkur. Samtal við annað skólafólk gefur okkur tækifæri til að deila reynslu og hugmyndum, fá ný sjónarhorn og halda áfram að þróa starfið okkar.
Fleiri góðir gestir eru væntanlegir áður en jólafríið gengur í garð og hlökkum við til að taka á móti þeim en þá eigum við von á tónlistarfólki, fleiri rithöfundum og öðru góðu fólki.
Það er dýrmætt að hafa skólann opinn fyrir samfélaginu, læra af þeim sem til okkar koma og fá um leið tækifæri til að miðla því góða starfi sem fram fer innan skólans.




|
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brekko.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 13:30 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brekko.is.