Starf aðstoðarskólastjóra Brekkubæjarskóla var auglýst laust til umsóknar á ráðningarvefnum Alfreð og á heimasíðu Akraneskaupstaðar 29. apríl 2025. Umsóknarfrestur var til og með 14. maí 2025 og bárust alls 13 umsóknir um starfið. Eftir yfirferð umsókna með tilliti til hæfniskrafna var ákveðið að bjóða 11 umsækjendum í starfsviðtal. Að loknum þeim viðtölum voru þeim 4 umsækjendum sem best þóttu standa sig í heildarmati á viðtölum og grunnmati boðið í framhaldsviðtal.
Eftir framhaldsviðtöl og yfirferð á öllum gögnum og upplýsingum var það mat ráðninganefndar að Ásmundur Guðni Haraldsson væri hæfastur til þess að gegna starfinu.
Ásmundur er með BA próf í fjölmiðlafræði frá Gannon University. Auk þess er hann með M.Sc. próf í kennsluhönnun frá Clarion University ásamt því að vera með kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Að auki hefur Ásmundur tekið fjölmörg námskeið sem munu nýtast honum vel í starfi aðstoðarskólastjóra Brekkubæjarskóla.
Ásmundur hefur víðtæka starfsreynslu og hefur frá árinu 2016 starfað sem kennari við Verzlunarskóla Íslands ásamt því að vera aðstoðarþjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu frá árinu 2021. Ásmundur hefur áralanga reynslu í starfi með börnum og ungmennum og hefur ýmist starfað sem aðstoðarþjálfari A landsliðskvenna eða aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í frá árinu 2013. Að auki hefur Ásmundur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá knattspyrnudeild Stjörnunnar og íþróttafélagsins Gróttu en þar þjálfaði hann einnig meistaraflokk karla. Frá árinu 2004-2006 starfaði Ásmundur sem íþróttastjóri hjá íþróttafélaginu Víkingi. Áður starfaði hann sem yfirflokkstjóri og verkefnastjóri á bæjarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar.
Við bjóðum Ásmund velkominn í hinn öfluga starfsmannahóp Brekkubæjarskóla og hlökkum til samstarfsins við hann.
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.