Öll lesa á degi læsis

Alþjóðlegur dagur læsis er þann 8.september og við í Brekkubæjarskóla höldum alltaf upp á hann með lestrarstundinni ,,Öll lesa". Þá setjast öll niður með bók í hönd, jafnt nemendur sem starfsfólk, og lesa í 20 mínútur hvar sem fólk er statt. Á degi læsis er foreldrum boðið að koma líka og lesa með börnunum og eiga með þeim notalega lestrarstund. 

Myndir frá degi læsis má sjá hér.