Sameiginlegur fagfundur Brekkó og Grundó

Miðvikudaginn 28. október síðastliðinn var haldinn sameiginlegur fagfundur Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Fagfundurinn var tileinkaður læsi og var haldinn á sal skólans. Kennarar og fagaðilar beggja skóla hittust í kaffispjall áður en þær Jónella skólasafnskennari og Gurrý sérkennari stigu á stokk og sögðu frá hinum ýmsu verkefnum tengdum læsi sem unnin eru hér í skólanum sem eru til þess fallin að auka lestraráhuga nemenda. Að kynningunni lokinni hittust bekkjarteymi skólanna á sínum stigum og ræddu þar sína nálgun varðandi læsiskennslu, lesskilning og lesfimiþjálfun. Dagurinn lukkaðist vel og vonast er til að þetta auki faglega samvinnu milli skólanna í nánustu framtíð. Takk fyrir komuna Grundaskóli!