Sjálfsmynd Brekkubæjarskóla

Verk nemenda í Tónbergi
Verk nemenda í Tónbergi

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að Vökudagar fara nú fram á Akranesi. Vökudagar eru menningarhátíð Akraneskaupstaðar, haldin ár hvert í lok október og byrjun nóvember frá árinu 2002. Hópur listafólks og menningarunnenda frá Akranesi stendur að hátíðinni í samvinnu við mennta- og menningarstofnanir bæjarins. Markmiðið er að efla menningarlíf í bænum og lífga upp á skammdegið — með myndlistarsýningum, tónleikum, smiðjum, mörkuðum og bókmenntakvöldum um allan bæ.
Brekkubæjarskóli tekur þátt á Vökudögum en í Tónbergi er sýning á sjálfsmyndum allra nemenda skólans þar sem hver og einn árgangur á sinn lit og myndar þar eina heild. Hægt er skoða dagskrá Vökudaga á vokudagar.is

Dagskrá sýningarinnar í Tónbergi:

Fimmtudagur, 22. október · 18:00–21:00

Mánudagur, 26. október · 09:00–12:00

Þriðjudagur, 27. október · 13:00–16:00

Miðvikudagur, 28. október · 13:00–16:00

Fimmtudagur, 29. október · 13:00–15:59

Föstudagur, 30. október · 09:00–16:00