Skólaslitamorgunstund

Þann 10. maí var Brekkubæjarskóla slitið með fjörugri morgunstund. Nýútskrifaðir 10.bekkingar létu gamminn geysa í tónlistarflutningi og söng og að auki voru m.a. veittar viðurkenningar fyrir sandlistaverkakeppnina sem fór fram á vordögum. Það voru hressir krakkar sem héldu svo út í sumarið með vitnisburðarskjölin sín. 

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst. Hafið það gott í sumar og njótið frísins!

Myndir frá skólaslitamorgunstund má sjá hér.