Þriðjudaginn 15. september hófst Svakalega lestrarkeppnin 2026. Keppnin er haldin á landsvísu og að þessu sinni ákváðum við í Brekkó að vera með! Í Svakalegu lestrarkeppninni keppast nemendur í 1.-7. bekk við að lesa sem flestar mínútur í þrjár vikur. Sá skóli, þar sem nemendur lesa flestar mínútur að meðaltali, vinnur keppnina og fær titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins!
Það eru mynd- og rithöfundarnir Blær og Eva Rún sem standa að keppninni og í gær komu þær til okkar og kynntu keppnina fyrir nemendum. Þær þurftu ekki að peppa okkar krakka mikið enda eru Brekkubæingar annálaðir fyrir keppnisskapið!
Eftir að keppnin hófst hefur gripið um sig lestraræði í Brekkubæjarskóla og nemendur lesa hverja lausa stund, bæði inni og úti, hreinlega éta upp hverja bókina á fætur annarri eins og einhverjir hestar. Við hvetjum foreldra til að rífa upp lestrarstemninguna heima og koma öllu heimilinu í dúndrandi lestrarstuð!
Lestrarappið Læsir hjálpar okkur við að halda utan um allar mínúturnar. Við skráum lesnar mínútur þegar barnið les bók, hlustar á hljóðbók og þegar við lesum fyrir það.
Áfram Brekkó-fjölskyldur, stöndum öll saman og sýnum hvað við getum!
|
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brekko.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 13:30 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brekko.is.