Trommað gegn einelti!

Í dag komu nemendur saman í lok skóladags og trommuðu saman gegn einelti. Trommuslátturinn fór fram á lóð skólans fyrir framan íþróttahúsið undir styrkri stjórn trommusveitar skólans. En hvað er einelti? Einelti er ójafn leikur þar sem einn aðili eða fleiri hafa ítrekað farið yfir persónuleg mörk annars aðila með líkamlegu, andlegu eða félagslegu ofbeldi eða félagslegri einangrun. Einelti getur þrifist alls staðar þar sem samskipti eiga sér stað án tillits til aldurs fólks, vitsmunaþroska, efnahags, stéttar, stöðu eða búsetu.

Á heimasíðu skólans er að finna aðgerðaráætlun vegna eineltis og hnappur þar sem hægt er að tilkynna einelti. 

Aðgerðaáætlun gegn einelti | Brekkubæjarskóli

Myndir frá deginum