Dagur íslenskrar tungu í Brekkubæjarskóla

Á mánudaginn síðastliðinn héldum við upp á dag íslenskrar tungu með skemmtilegri samverustund í setustofu unglinga.

Stigin komu niður hvert á fætur öðru og fengu stutta fræðslu frá Jónellu um dag íslenskrar tungu og mikilvægi þess að halda íslenskunni á lofti. Gurrý las fyrir nemendur úr Keðjusögu Brekkó og Hjörvar stýrði síðan söngstund þar sem krakkarnir tóku vel undir og sungu saman þrjú lög.

Það var notaleg stemning og gaman að sjá nemendur koma saman til að fagna tungumálinu okkar með fræðslu, upplestri og söng.

Með fréttinni fylgja myndir og myndskeið frá stundinni.

En hvað er dagur íslenskrar tungu?

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, skálds og náttúrufræðings. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu, efla notkun hennar og vekja athygli á því mikilvæga hlutverki sem tungumálið gegnir í menningu okkar og samfélagi.

Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996 og síðan þá hefur 16. nóvember verið tileinkaður íslenskunni og fjölbreyttri notkun hennar. Jónas Hallgrímsson varð fyrir valinu vegna mikilvægs framlags hans til íslenskrar tungu, ekki síst með ritstörfum sínum og nýyrðasmíð.

Í skólum er dagurinn kjörið tækifæri til að lesa, syngja, leika sér með tungumálið og minna okkur á að íslenskan lifir og þróast með okkur öllum.