Dagur íslenskrar tungu í Brekkubæjarskóla

Á mánudaginn síðastliðinn héldum við upp á dag íslenskrar tungu með skemmtilegri samverustund í setustofu unglinga. Stigin komu niður hvert á fætur öðru og fengu stutta fræðslu frá Jónellu um dag íslenskrar tungu og mikilvægi þess að halda íslenskunni á lofti. Gurrý las fyrir nemendur úr Keðjusögu Brekkó og Hjörvar stýrði síðan söngstund þar sem krakkarnir tóku vel undir og sungu saman þrjú lög.
Lesa meira

Öflugir krakkar í öflugu samfélagi

Skólinn er stór hluti af lífi barna og ungmenna en mikilvægt nám og þroski á sér líka stað utan veggja hans. Það sjáum við vel hjá nemendum okkar sem taka virkan þátt í fjölbreyttu íþróttastarfi ÍA hér á Akranesi. Þar æfa þau með félögum sínum, setja sér markmið og læra mikilvægi samvinnu, seiglu og þess að leggja sig fram. Íþróttastarfið er þannig mikilvægur vettvangur fyrir börn og ungmenni til að vaxa, takast á við áskoranir og upplifa gleðina sem fylgir því að tilheyra góðum hópi.
Lesa meira

Bókaormar Brekkó 2026!

Nú eru úrslitin ljós í hinni árlegu spurningakeppni Bókaormar Brekkó. Það eru nemendur í 4.-7. BS sem taka þátt. Undirbúningurinn hófst strax í vor því þá var bókunum 14 fyrst stillt upp svo að nemendur gætu byrjað að lesa þær. Svo voru bækurnar fluttar á Bókasafn Akraness yfir sumarið og lestrinum haldið áfram.
Lesa meira

Margir góðir gestir í Brekkubæjarskóla

Það hefur verið líflegt í Brekkubæjarskóla í haust og fjölbreyttur hópur gesta hefur lagt leið sína til okkar. Slíkar heimsóknir eru kærkomin viðbót við skólastarfið og færa okkur nýja þekkingu, reynslu og sjónarhorn.
Lesa meira

Trommað gegn einelti!

Í dag komu nemendur saman í lok skóladags og trommuðu saman gegn einelti. Trommuslátturinn fór fram á lóð skólans fyrir framan íþróttahúsið undir styrkri stjórn trommusveitar skólans. En hvað er einelti?
Lesa meira

Sameiginlegur fagfundur Brekkó og Grundó

Miðvikudaginn 28. október síðastliðinn var haldinn sameiginlegur fagfundur Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Fagfundurinn var tileinkaður læsi og var haldinn á sal skólans.
Lesa meira

Sjálfsmynd Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli tekur þátt á Vökudögum en í Tónbergi er sýning á sjálfsmyndum allra nemenda skólans þar sem hver og einn árgangur á sinn lit og myndar þar eina heild.
Lesa meira

Svakalega lestrarkeppnin 2026 - 14. sæti

Dagana 15. september til 6. október fór Svakalega lestrarkeppnin fram í 108 skólum. Nemendur í 1.-7. bekk tóku þátt og söfnuðu lestrarmínútum fyrir sinn skóla. Krakkarnir í Brekkó tóku vel við sér og lásu af kappi, mörg lásu heima hvern einasta dag keppninnar, þau lásu líka heilmikið í skólanum og jafnvel úti í frímínútum!
Lesa meira

Haustfrí Brekkubæjarskóla

Haustfrí Brekkubæjarskóla verður dagana 19. og 20. október. Skólastarf hefst svo að nýju miðvikudaginn 21. október. Við vonum að sem flestir njótis frísins og komi endurnærð tilbaka til þess að takast á við seinni helming annarinnar.
Lesa meira

Takk fyrir góða mætingu á fræðslukvöldið!

Við viljum þakka foreldrum og forráðamönnum kærlega fyrir góða mætingu á fræðslukvöldið í gær. Kvöldið heppnaðist afar vel og voru erindin bæði áhugaverð og gagnleg.
Lesa meira